Steinar og Oddur áfram með meistaraflokk karla👏🏼
Í gær var samið við þjálfarateymi meistaraflokks karla fyrir komandi leiktíð í Bónus deildinni. Dúettinn sem stýrt hefur liðinu síðustu þrjú tímabil mun áfram halda í stjórnartaumana en Steinar Kaldal verður áfram aðalþjálfari en honum til aðstoðar verður Oddur Birnir Pétursson.
Þeir félagar stýrðu liðinu upp í 1. deildina fyrir rúmu ári og náðu þeim árangri í vetur að halda liðinu í efstu deild eftir hetjulega baráttu allt til enda. Framundan er spennandi tímabil í Bónus deildinni og er fullur hugur til að bæta í fyrir komandi átök.
Það eru mikil gleðitíðindi að Steinar og Oddur starfi áfram hjá félaginu enda mikil ánægja með þeirra störf hjá félaginu.
Frekari tíðindi eru væntanleg af leikmannamálum meistaraflokkana.
Áfram Ármann! 💙🏀



