Nýjar útikörfur
Körfuknattleiksdeild Ármanns fékk styrk frá íþróttasjóði Rannís fyrir færanlegum körfum og hafa þær hendur betur slegið í gegn. Körfurnar hafa m.a. vakið lukku á hverfishátíð og núna síðast í skólaþorpi Laugarnesskóla. Börn í 5. og 6. bekk Laugarnesskóla eru þessi misserin í skólaþorpinu á meðan viðgerðir fara fram á Laugarnesskóla og körfurnar voru heldur betur kærkomin viðbót í frímínútum á nýjum stað.
Áfram Ármann!
