Halló Bónus deildin – Jónína framlengir🤩
Gleðitíðindi bárust á dögunum þegar félaginu var boðið sæti í Bónus deildinni á nýjan leik fyrir næstu leiktíð. Hamar/Þór hefur tilkynnt að liðið muni ekki leika í efstu deild að ári og í framhaldinu bauð KKÍ Ármann sætið. Eftir samtal við stjórn, þjálfara og leikmenn hefur verið ákveðið að taka sætinu, KKÍ hefur verið tilkynnt það formlega og leikur Ármann því í efstu deild á næstu leiktíð.
Nú hefst undirbúningur fyrir efstu deild og við erum gríðarlega spennt fyrir framhaldinu. Liðið er klárt í slaginn og ætlum okkur að stilla upp öflugu liði.

Gleðitíðindin eru þá ekki upptalin þar sem Jónína Þórdís Karlsdóttir endurnýjaði samning sinn við félagið um eitt ár. Jónína hefur verið lykilleikmaður liðsins síðustu ár, valin besti leikmaður 1. deildarinnar í þrígang og drifkraftur liðsins sem lék í efstu deild á síðustu leiktíð.
„Það eru frábær tíðindi fyrir hverfið að við munum taka slaginn með bæði kvenna og karlaliðið í efstu deild. Þrátt fyrir að pabbi sé hættur kom ekki annað til greina fyrir mig en að skrifa undir hjá mínu uppeldisfélagi og taka þátt í þessari flottu vegferð sem félagið er á með bæði lið á hæsta stigi.“ Sagði Jónína við undirskrift og bætti við:
„Uppgangur félagsins hefur verið gríðarlegur síðustu ár og ég er spennt að vinna með öllu því frábæra fólki sem hefur bæði unnið að uppbyggingu klúbbsins og einnig þeim sem eru að bætast við ný og fersk með aukinn kraft. Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili.“
Það er frábært að við höldum áfram kröftum Jónínu í Bónus deildinni.
Sjáumst í Bónus í vetur!🐷
Áfram Ármann💙

