|

Besti ungi leikmaðurinn til Ármanns 💙🏀

Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur samið við Styrmi Jónasson um að ganga til liðs við félagið og leika með liðinu í Bónus deild karla á komandi tímabili.

Styrmir er tvítugur bakvörður sem kemur eftir öflugt tímabil með ÍA þar sem hann vakti verðskuldaða athygli fyrir leik sinn. Hann lék alla 22 leiki ÍA í Bónus deildinni á síðasta tímabili, spilaði stórt hlutverk í liðinu og skoraði að meðaltali 11 stig í leik. Í lok tímabilsins var Styrmir valinn besti ungi leikmaður Bónus deildar karla, sem undirstrikar hversu stórt skref hann tók á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

Styrmir er uppalinn Skagamaður og hefur undanfarin ár byggt upp orðspor sem einn af efnilegustu leikmönnum landsins. Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst fleiri en eina stöðu og býr yfir eiginleikum sem falla vel að þeim leikstíl og þeirri stefnu sem Ármann vill vinna eftir. Hann hefur einnig komið við sögu með yngri landsliðum Íslands, meðal annars á FIBA U20 EuroBasket, og kemur því með mikilvæga reynslu þrátt fyrir ungan aldur.

Koma Styrmis er stórt skref fyrir Ármann þegar liðið undirbýr sig fyrir krefjandi verkefni í Bónus deildinni. Félagið hefur lagt áherslu á að styrkja leikmannahópinn með ungum metnaðarfullum, sem vilja taka næsta skref í sínum ferli. Styrmir fellur vel að þeirri mynd og er leikmaður sem við bindum miklar vonir við til framtíðar.

„Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ármann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leikmaður. Við Ármenningar vitum líka að körfuboltatímabilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolinmæði, úthald og rétt hugarfar alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá vegferð.“ segir Steinar Kaldal þjálfari liðsins.

Styrmir segist spenntur fyrir nýju verkefni í Laugardalnum.

„Ég er mjög spenntur að vera kominn í Ármann. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leikmann og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tímabils! Áfram Ármann“

Ármann býður Styrmi hjartanlega velkominn í félagið og hlakkar til að sjá hann í búningi félagsins á komandi tímabili.