Arnaldur næstu þrjú árin í Laugardalnum👏🏼

Penninn í Laugardalshöllinni er sjóðheitur þessa dagana. Arnaldur Grímsson skrifaði á dögunum undir nýjan samning við Ármann og mun leika með meistaraflokk félagsins áfram.
Við erum gríðarlega stolt af því að Arnaldur festi sig í sessi hjá félaginu en hann skrifar undir þriggja ára samning. Arnaldur er því orðinn staðfastur Ármenningur og mun áfram vera í stóru hlutverki í okkar öfluga liði. Hann fer nú inní sitt þriðja tímabil með félaginu og höfum við gríðarlega trú á að hann taki næstu skref á ferli sínum í blárri Ármannstreyju.
Við undirskrift sagði Arnaldur: „Ég er virkilega spenntur fyrir komandi tímabili og við ætlum okkur stærri hluti en á seinasta tímabili. Hlakka til að spila áfram með Ármanni.“
Frekari tíðinda er að vænta af leikmannamálum liðanna.
Áfram Ármann! 💙

