Ármann áfram í efstu deild
Nýliðarnir í Bónusdeildinni þetta tímabilið, ÍA og Ármann, mættust í lokaumferð deildarkeppninnar í AvAir-höllinni á Akranesi í kvöld. ÍA var fyrir leikinn fallið úr deildinni á meðan Ármenningar gátu með sigri í leiknum tryggt veru sína í efstu deild næsta tímabil.
Ármenningar byrjuðu leikinn af krafti, vel studdir af fjölmörgum áhorfendum sem fylgdu liðinu upp á Akranes, og komust í 0–9 á fyrstu tveimur mínútunum. Skagamenn tóku aðeins við sér og svöruðu með 9–2 kafla á næstu tveimur mínútum. Þetta var svo gangur leiksins næstu mínútur fyrsta leikhluta. Ármenningar héldu sínum leik þó í aðeins meira jafnvægi en ÍA og leiddu eftir fyrsta leikhlutann, 27–32.
