Sumaræfingar
Körfuknattleiksdeildin verður með umfangsmikið starf í sumar. Skráning er hafin í sumarnámskeiðin sem eru fyrir iðkendur í 1.-4. bekk. Fjögur námskeið verða í boði í júní og ágúst.
Skráning er hér: https://www.abler.io/shop/armann/korfubolti
Einnig verða æfingar fyrir eldri iðkendur þar sem lögð er áhersla á tækniæfingar skot og spil.
Styrktaræfingar verða fyrir iðkendur fædd 2013 og eldri. Æfingarnar verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Stefán Diego Garcia mun sjá um þær.
Að auki munum við bjóða upp á opin hús þar sem iðkendur deildarinnar fá tækifæri til að koma og æfa sig sjálf og spila.
Sumarið er tími framfara. Hlökkum til að sjá ykkur.
