Búi Steinn í Ármann

Einn besti langhlaupari Íslands, Búi Steinn Kárason, hefur söðlað um og gengið til liðs við Glímufélagið Ármann. Búi kemur úr Fimleikafélagi Hafnarfjarðar (FH) og hefur t.d. hlaupið 5 km á 15:41 mín, maraþon á 2:33:54 klst. og 160 km utanvegahlaup í Henglinum á 23:50:40 klst. Hann hyggst einbeita sér að hraðari brautar- og götuhlaupum á þessu ári og hittir fyrir í Ármanni ríkjandi Íslandsmeistara í 5 og 10 km götuhlaupum, Stefán Pálsson.

„Tilkoma Búa til okkar gerir gott og efnilegt lið enn betra og sýnir að við færumst hratt í rétta átt í Laugardalnum. Við erum með frábæra blöndu af fljótum, efnilegum millivegalengdahlaupurum og frábærum, reynslumeiri langhlaupurum, sem hjálpa hverjir öðrum á æfingum og eiga sinn þátt í að búa til vaxandi og stórskemmtilega stemmningu á æfingum“, segir Björn Margeirsson hlaupaþjálfari Ármanns.

Myndatexti: Búi Steinn Kárason lengst til vinstri ásamt félögum sínum úr landsliði Íslands í Norðurlandamótinu í víðavangshlaupi árið 2023 (mynd frá www.fri.is).