Sólmyrkvagleraugu
Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur sölu á sólmyrkvagleraugum sem fjáröflun fyrir deildina! Iðkendur deildarinnar munu ganga í hús í hverfum í kring um Ármann og selja gleraugun, þau kosta einungis 2000kr og við hvetjum ykkur til að taka vel á móti þeim!
Einnig má setja heimilisfangið ykkar í athugasemd á Facebook ef þið viljið tryggja að þau mæti til ykkar! Áfram Ármann ![]()

