Ragga áfram í bláu
Við höldum áfram að færa fregnir að leikmannamálum meistaraflokkana. Á dögunum skrifaði Ragnheiður Björk Einarsdóttir undir nýjan samning við félagið og leikur með liðinu á komandi leiktíð.
Ragnheiður kom til félagsins um áramót 2025 og hefur verið lykilkona í liðinu sem tryggði sér uppum deild það tímabilið og lék svo í Bónus deildinni á nýliðinni leiktíð. Ragnheiður hefur leikið með Haukum, Breiðablik og Grindavík á Íslandi auk þess að vera í fjögur ár í bandaríska háskólaboltanum.
Það eru frábær tíðindi að Ragga verði áfram hluti af hópnum sem verður í Bónus deildinni á komandi leiktíð. Frekari tíðinda er að vænta um leikmannamál meistaraflokkanna á næstu dögum![]()

