|

INGVI ÁFRAM Í LAUGARDALNUM 💙💙🏀

Á þessum fallega sunnudegi skrifaði Ingvi Þór Guðmundsson undir nýjan tveggja ára samning við Ármann um að leika með liðinu í Bónus deildinni.

Ingvi kom eins og stormsveipur inní Ármannsliðið á síðustu leiktíð og á stóran þátt í því að liðið náði markmiðum sínum. Hann endaði með 11 stig að meðaltali og átti stórkostlegar frammistöður.

Við erum stolt af því að Ingvi hafi ákveðið að snúa aftur þrátt fyrir áhuga fleiri liða. Hann verður burðarás í liðinu næstu árin.

Fleiri fregnir af leikmannamálum er að vænta á næstu dögum.

ÁFRAM ÁRMANN🏀💙

INGVI ÁFRAM Í LAUGARDALNUM